Aldursskiptingar verða þær sömu og á síðasta móti, pollar (30+) lávarðar (40+) og öðlingar (45+) hjá körlunum, skvísur (20+) og ljónynjur (30+) hjá konunum.
Nokkrar breytingar eru fyrirhugaðar í elstu flokkum karla og kvenna eða hjá öðlingum og ljónynjum. Þar ætlum við að minnka vellina og fækka í liðum og spila 5 manna bolta, það verður síðan óbreytt hjá pollum, lávörðum og skvísum.
Dómaraáherslur verða þær sömu og á síðasta móti og hvetjum við alla að kynna sér þær hér á síðunni. Við viljum líka koma þeim skilaboðum til ykkar að yfirgnæfandi líkur eru á því að Dómarafélag Norðurland taki þátt í að dæma á mótinu og er það eitthvað sem við fögnum.
Það er mikill vilji hjá okkur að reyna að fá reynda dómara til að taka þátt í dómgæslu ásamt meistaraflokknum og geta notað yngri félagsmenn til annarra verka á mótinu.
Einnig ætlum við að taka okkur á í að sinna börnunum á meðan mótinu stendur og verið er að vinna í þeirri hugmynd að útbúa afgirt barnahorn sem verður undir eftirliti meistaraflokks kvenna. Þar verður margskonar dagskrá fyrir börnin á meðan leikir fara fram á mótinu. Við hvetjum alla sem vilja að koma með sína skoðun á þessar breytingar.
Leikirnir:
Leikirnir byrja væntanlega um 08 á föstudagsmorgun og verður spilað fram undir kvöldmat, svo verður byrjað aftur um 08 á laugardagsmorgun, riðlar kláraðir og um hádegi byrjar úrslitafjörið, sennilega 16 liða í Polladeild og 8 liða hjá Lávörðum ( fer eftir fjölda liða )
Skráningin:
Skráningin fer fram á netinu, þar skráir ábyrgðarmaður sig fyrir liðinu og svo skráir hann alla leikmenn þess, ekki nauðsynlegt að gera það strax því hægt verður að fara inn og bæta við leikmönnum fram að lokum skráningar sem er 30. júní kl 23:59. Best er að senda leikmannalistann á pollamot@thorsport.is eða afhenda hann við komuna.
Mótsgjaldið:
Mótsgjaldið í ár verður kr. 40.000 á lið og þá er miðað við 8 leikmenn. Aukaarmband kostar svo 2500 kr. Greiða verður staðfestingagjald kr. 10.000 fyrir 25. júní 2011. Lykilatriði að öll lið verði búnir að gera upp við gjaldkera áður en leikur hefst. Armbönd og kvittun fyrir mótsgjaldinu er hægt að nálgast hjá gjaldkera mótsins á fimmtudeginum og á föstudagsmorgun. Best að koma á fimmtudeginum svo það séu allir örugglega búnir að fá armband áður en leikir hefjast.
Mótgjaldið er hægt að leggja inn á reikning mótsins:
Kennitala 6709912109
Banki 0162
Höfuðbók 26
Reikningnúmer er 1266
Láta svo fylgja með nafn liðs og deild ( Polla-, Lávarða-,Öðlinga- , Skvísu-, eða Ljónynju-deild) Vinsamlegast sendið kvittun á pollamot[at]thorsport.is í gegnum heimabankann.
Tjaldstæði:
Tjaldsvæðin verða þau sömu og á síðasta móti, framkvæmdir við Glerárskóla eru þó búnar og hægt verður að nota salernisaðstöðuna í skólanum. Rafmagnsmál voru í nokkuð góðu lagi síðast en þörf á meira rafmagni á vissum stöðum og munum við laga það, en minni samt tjaldsvæðisgesti á að fara sparlega með rafmagnið enda eru þeir í útilegu.
Mótstjórn Pollamóts Þórs og Icelandair 2011
Hlynur Birgisson 846 9941
Orri Stefánsson 895 1232
Aðalsteinn Pálsson 821 8888
Valdimar Pálsson 844 3806
Rafvirkjar
Rúnar Hermansson 840 4812
Gunnar Gunnarsson 898 7021
![]()
