| 1.Polladeildin er fyrir knattspyrnumenn 30 ára og eldri. - Ef menn verða þrítugir á árinu teljast þeir gjaldgengir. 2.Lávarðadeildin er fyrir knattspyrnumenn 40 ára og eldri. - Ef menn verða fertugir á árinu teljast þeir gjaldgengir. 3.Öðlingadeildin er fyrir knattspyrnumenn 50 ára og eldri. - Ef menn verða fimmtugir á árinu teljast þeir gjaldgengir. 4.Skvísudeildin er fyrir knattspyrnukonur 25 ára og eldri. - Ef konur verða tuttugu og fimm ára á árinu teljast þær gjaldgengar. 5.Ljónynjudeildin er fyrir knattspyrnukonur 35 ára og eldri. - Ef konur verða þrjátíu og fimm ára á árinu teljast þær gjaldgengar. 6.Hvert lið skal vera skipað sjö leikmönnum og skal einn vera markvörður. Skipta má um leikmann hvenær sem er á meðan leik stendur. Skrá skal alla liðsmenn hvers liðs til að þeir teljist löglegir. Aðeins er hægt að spila með 1. liði í keppninni. 7.Sérstaklega skal tekið fram að sömu reglur gilda um sendingar til markvarðar og gilda í deildarkeppnum á vegum KSÍ, nema hjá Lávörðum/Öðlingum þar mega markmenn taka knöttinn með höndum. 8.Leiktíminn er 2 x 12 mínútur og leikið er á minnivöllum. 9.Leikið verður á grasvöllum og gervigrasi innanhúss. 10.Ekki er heimilt að spila á grasskóm í keppninni. 11.Ekki er leyfilegt að nota leikmenn sem spilað hafa, eða verið á leikskrá sama ár í 0. deild, 1. deild og 2. deild. 12.Lið sem ekki mætir til leiks í riðlakeppni missir rétt til þátttöku í úrslitakeppni. 13.Að lokinni riðlakeppni hefst úrslitakeppni. Ef jafnt er í lok venjulegs leiktíma í úrslitakeppni verður háð vítaspyrnukeppni. Framkvæmdar verða þrjár vítaspyrnur á lið og ef það dugar ekki verður haldið áfram þar til úrslit fást. 14.Ef lið eru jöfn að stigum gilda reglur KSÍ um röð liða. 15.Allir leiki skulu fara fram skv. knattspyrnulögum KSÍ og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, nema annars sé getið í reglugerð þessari. 16.Kærufrestur er 1/2 klst frá loknum leik. Kæru skal skilað skriflega til mótstjórnar. |
![]()
