Varðandi tjaldsvæðin við Glerárskóla:
það er búið að græja rafmagnið, það verður meira en í fyrra en við ítrekum það að tjaldgestir fari eins sparlega með rafmagnið eins og kostur er. Því það verður ekki aukið við það og það verður ekki kallað út húsvörðinn um nótt til að slá inn rafmagnið ef það dettur út. Tveir útikamrar verða sunnan við skólann, en ef gestir vilja komast inn þá verður salernisaðstaðan í nýju stúkunni við aðalvöllinn opin fyrir tjaldsvæðisgesti. Hliðið verður opið bak við stúkuna og þar er gengið inn. Þetta er einungis í 5 mín fjarlægð frá tjaldsvæðinu við Glerárskóla. Einnig er stutt í Hamar, en þar verður ávalt opið fyrir tjaldsvæðisgesti. Ekki verður hægt að komast inn í skólann sjálfan.
Mikilvægt að öll umferð í Tjaldsvæðið við skólann fari að austanverðu, ekki íþróttahúsmegin.
Búið er að græja rafmagn við stóra tjaldsvæðið norðan við Hamar, útikamrar verða settir þar á morgun. En þaðan er líka örstutt í félagsheimilið.
Einnig er líka hægt að tjalda vestan við Hamar og er hægt að komast í rafmagn þar úr Hamri eða Lundgarði (litla húsið gengt bílastæðinu við Hamar.
Hengd verður upp leikjafyrirkomulag, dagskrá og mikilvæg símanúmer í öll tjaldsvæði á morgun fimmtudag
Mótsnefnd
![]()
