Ný lið bætast við á hverjum degi og hafa KH, Binni í Gröf, IFC, ÍR og Real Grímsey bæst við í Polladeildina. UMFUS í lávarðadeildina og Brynjurnar og Systurnar í Ljónynjudeild. Auk þess senda Brynjurnar líka lið í skvísudeildina. Ný lið verða sett inn jafnóðum í dálkinn lið og leikmenn í mótinu 2010.
Búið er að setja saman drög að dagskrá og sú skemmtun og afþreying sem verður í boði báða dagana er glæsileg. Hoppukastalar, kassabílar, Sirkus Artica, Lilli klifurmús báða daganna, Einar einstaki töframaður sem mætir einnig báða dagana og barnaball á föstudagskvöldið ættu að halda börnunum uppteknum. Trúbrator spilar á pallinum báða dagana, Þórsbandið heldur uppi stuði bæði kvöldin ásamt uppistandi. Óskar Pétursson mætir á svæðið laugardagskvöldið. Flugvél frá Icelandair flýgur yfir svæðið og dreifir sælgæti.
Verið er að klára tjaldsvæðismál, en þau verða klár á miðvikudeginum fyrir mót með aðgengi að rafmagni og salernisaðstöðu.
![]()
