Ginolamenn þakka kærlega fyrir frábæra skemmtun,sjáumst á næsta ári
Ég þakka fyrir hönd Gosanna,fyrir frábært mót og í alla staði heppnaðist þetta mjög vel. Við fórum ánægðir frá mótinu og komum aftur á næsta ári. Mkv Gosarnir
staðan í lok föstudags er kominn inn á thorsport.is
Minni á pub quis í Hamri í kvöld kl. 21:00 ... létt pöbbastemning. Barnagarðurinn verður opinn
"Uppfært kl. 21.28 á fimmtudag" Smá pepp fyrir uppfærslurnar á netinu!
Yfirlit leikja og öll úrslit jafnóðum og þau berast og eru skráð inn má sjá í pdf-skjölum á heimasíðu Þórs. Sjá hér: http://thorsport.is/thorsport/D10Master.aspx?D10cID=ReadNews2&ID=5934
Setja leikina inn á pollamót 2011 en ekki bara inn á thorsport.is
Kóparnir geta bætt við sig manni. :) sendið á speinarsson@gmail.com
ég held að það sé alveg á hreynu að það er vitlaust skráð ÍR lið og búið að borga staðfestinga gjald fyrir Lávarðardeild ekki Polla allavega var +40 búið að skrá lið hann Benedikt Einarsson gerði það
UMF Óþokka vantar markmann í Polladeildina. Endilega hafið samband; birgir@samherji.is
Okkur vantar leikmenn í polladeildina. Fullt af spilatíma og gleði út í gegn. Eina staðan sem ekki vantar mannskap í er markið :) Áhugasamir hafi samband við mig í síma 895-1998. Kv. Lárus
Sigrún Helga,Tania og Tinna. Endilega hafið samband við mig. kv. Berglind s:696-8590
Og við erum sammála Önnu hérna fyrir neðan, aldurstakmarkið ætti bara að vera 30 eins og hjá körlunum, og allavega alls ekki neðar en 25 ára með fullri virðingu fyrir þeim sem eru yngri! En það erum bara við! :)
Okkur langar svo agalega að vera með í Ljónynjumótinu (30+)en vantar liðsfélaga! Hvernig virkar þetta með kauplistann? Er skráð fyrirfram eða hvað?
Hæ, hæ. Mig langar að vera með, en vantar lið :p Ég er 29 ára ('82) svo ég rétt slepp ekki í +30 liðin :) Vill einhver eiga mig? ;)
Hæ, er komin niðurstaða í málið?
það kostar ekkert að prófa þetta i eitt ár 6x6 dömur .. gefum þeim tækifæri.. mér persónulega er sama :) eina sem mér finnst er að ætti að breyta ( og geri greinilega marga dömur brjálað núna) að hafa aldurstakmarkið 30 ára. En það er bara ég:) eigið gott pollamót kæru vinir og munið að tapa ekki gleðinni.
Stelpur athugið ef þið viljið ekki spila 6x6,þá skráið ykkar lið bara í 20+ flokkinn sem spilar með 7x7 leikmenn. Þetta er ekki flókið :)
Rökin eru einföld Hjördís, þegar við gerum svona breytingar, er það vegna þess að við höldum að það geri mótið betra og við náum enn frekar að fjölga kvennaliðum. Það sem við vitum er það að það er mjög mikil ánægja með Drottningamót ÍR, og það er einnig mikil ánægja með Verðbréfamótið. Þetta á við um elsta flokk karla líka.
Hæ Hlynur. Gaman væri að vita rökin fyrir að minnka velli og fækka í liði hjá ljónynjum. Væntanlega eruð þið þá líka að fækka hjá elsta flokki kk. ?
Við styðjum 6x6. Einhverjar hafa prófað það á verðbréfamóti í boganum og líkað vel.
Við í KR styðjum óbreytt fyrirkomulag, þ.e. 7 á móti 7.
Ég er að fara spil í fyrsta skifti 30plús og ég vil 6x6 er búin að prófa bæði og mér finnst þegar maður er komin á þennan aldur er 6x6 alveg nóg og ég veit að mjög margar vilja það!! Áfram 6x6!!
Ég er að fara spil í fyrsta skifti 30plús og ég vil 6x6 er búin að prófa bæði og mér finnst þegar maður er komin á þennan aldur er 6x6 alveg nóg og ég veit að mjög margar vilja það!! Áfram 6x6!!
Vertu alveg róleg Dóra ! það verður spilaður 6x6 eða 7x7 og verðið verður óbreytt.
Er komin niðurstaða með fjölda inná í leik? Ég verð bara að segja eins og er að ef niðurstaðan verður 5:5 ( skilst þið eigið í vandræðum með pláss fyrir velli) þá verði þið að lækka mótsgjaldið. 80.000 + fyrir tvö lið !!! Það er bara rugl
Auðvitað eru flest allar kvk ekkert að spá i dómurum = enda var ég eiginlega að benda á kk deildirnar:: þá kannski hætta þeir að tuða:)
:) góð hugmynd Anna .... en ég held að flestar stelpurnar hafi verið ánægða með dómara á síðsta móti, vonanum bara að þannig verði það áfram
Samband með dómara fyrir pollamótið í ár þá veit ég að alltaf er verið að væla yfir dómaragæslunni. Hvernig væri að þeir sem væla mest yfir henni, tækju að sér að dæma nokkra leiki sjálfir i stað þess að vera búnir að ákveða að 18 ára guttar geta ekki dæmt. HAFA bara reglu sá gaur/dama sem argar og pirrast mest fer sjálkrafa i að dæma næstu 2 leiki i röð ........
Slíkar undanþágur hafa gefið tilefni til óánægju hingað til, sérstaklega í kvennadeildunum. En auðvitað er hægt að skoða allt, og með samþykki og vitneskju allra andstæðinga er það alltaf mögulegt.
Eru einhverjar undanþágur varðandi aldur á mótinu. Má til dæmis nota einn leikmann í liði sem ekki er orðinn 30 hjá ljónynjum!!!!!
Skráningarfrestur til 30. júní, staðfestingargjald kr. 10.000 fyrir 25. júní
Hvenær þarf að vera búið að skrá lið í mótið? Hvenær þarf að vera búið að greiða?
Hvað er málið með þessar breytingar.. Það er mikið skemmtilegra að spila 7 á móti 7..
Sælir Þórsarar! 7x7 er málið! í ljónynjuflokknum!
Já endilega látið heyra í ykkur með þetta, það er alltaf hægt að breyta tilbaka, ef það er svona mikill meirihluti sem vill 7x7 áfram
Sælir, 7x7 er málið, í ljónynjuflokknum, ekki spurning. Hvað segja önnur lið um það?
Sælir Þórsarar! 7x7 er málið! í ljónynjuflokknum! Við erum ekki svo eldgamlar ;o)
Halló.... Mjög mikil óánægja að hafa ekki 7 manna bolta í ljónynjuflokknum.
Við höfum ákveðið að spila 6x6 og taka drottningamótið okkur til fyrirmyndar, vellirnir verða aðeins minni, en ég get ekki séð að það ætti að hafa áhrif á skemmtanagildi leiksins
Ég er sammála Þóru J. Ég vil spila áfram 7 manna ljónynju-bolta!!!!!!
Góðan dag, Við Dillurnar í ljónynjum erum ekki sáttar við fyrirhugaðar breytingar hjá ykkur að fækka í 5:5 og minnka vellina, common 5:5 er ekki málið. Takk
Þórsbandið þakkar öllum gestum lokahófsins fyrir frábært kvöld....
Af hverju eru fréttir af Pollamóti ekki á pollamótssíðunni eins og á Þórssíðunni.
Þakka öllum fyrir ágætis mót. Skipulagið hefði samt mátt vera betra t.d.uppfærsla úrslita á vefinn sem er svona basic atriði sem ætti að vera búið að fullreyna fyrir mót. Ég held að allir geri sér grein fyrir að þetta sé fjáröflun fyrir Þór og menn reyni að halda kostnaði í lágmarki en það verður að passa að sá sparnaður bitni ekki á gæðum mótsins.
Lið Innrifegurðar vill þakka Þórsurum fyrir flott mót. Eina sem ég get möulega fundið af þessu er að það mæti vera deild fyrir 100 kg plús :-)
Takk fyrir gott mót. Þetta var allt til fyrirmyndar. Miðað við fjölda þátttakenda rann þetta vel í gegn. Allavega getum við í mínu liði ekki kvartað undan neinu. Takk fyrir okkur. bkv. Hafsteinn Lúðvíksson Án Snertingar
Mótstjórnin vill þakka þeim öllum leikmönnum sem komu til okkar og gerðu þetta mót stórskemmtilegt, það var alveg frábært að fá ykkur og sjáumst að ári. Við viljum einnig þakka öllum sjálfboðaliðunum sem komu og tóku þátt í þessu með okkur, þetta er ekki hægt án ykkar. Takk fyrir.
Það er alltaf gott að fá góðar ábendingar, sumt sem er rætt hér er ekki þess virði að svara en sumir setja hlutina málefnilega fram og velta hlutum fyrir sér. Það er tvennt sem ég vil koma með hér, í fyrsta lagi talar einn um peningaplokk. varla þess virði að svara, en að sjálfsögðu er þetta FJÁRÖFLUN fyrir íþróttafélagið og gríðarlega mikilvæg sem slík. Peningaplokk, tala sumir um, 40.000 kr. mótsgjald, frítt tjaldsvæði, frítt rafmagn. Vil benda fólki á að skoða sambærileg mót t.d pæjumótið, þar kostar um 8000 á mann, 1000 kr. tjaldsvæði. N1 mótið hjá KA, þar kostar það um 13.000 á haus og þarf að tjalda á Hömrum sem kostar örugglega 2-3 Þúsund. Ég vil bara benda þeim á það sem finnst þetta vera peningaplokk geta þá fundið sér eitthvað annað og skemmtilegra að gera þessa helgi. í öðru lagi, dómaramálin... yngstu dómararnir sem við notuðum eru í öðrum flokki þ.e.a.s um 17 ára, við skulum hafa það alveg á hreinu. Ég vildi óska þess að við þyrftum ekki að nota 2. flokkinn í dómgæsluna, en það er ekki annað í boði. Langflestir sem fara á þetta mót og önnur stór mót með börnin sín skilja að margir sjálfboðsliðar eru fengnir til og örugglega flestir gera sitt besta, og skilja það líka að sumir eru betri dómarar en aðrir og einfaldlega gera ráð fyrir því að það gætu komið leikir þar sem dómgæslan er ekki eftir þeirra höfði. Er þetta ekki þá spurning um virðingu við dómara og leikinn. Að öðru þá lentum við í tæknilegu veseni með nýju síðuna með uppfærslu og það ásamt öðrum hlutum sem við vitum um, verða teknir til naflaskoðunar strax eftir mót og lagaðir.
Það má alltaf gera gott betur. Að mínu mati fór kappsemin stundum yfir strikið hjá mönnum og menn gleymdu að þetta snýst fyrst og fremst um að hafa gaman. Fagna því að rennitæklingar séu með öllu bannaðar og bláu spjöldin eru góð viðmót. Raunar hefði mátt nota þessi bláu spjöld oftar til að róa menn örlítið niður. Að sama skapi þyrfti að huga að því að hafa eldri og reyndari menn til að dæma, til skammar hvernig sumir töluðu niður til ungu strákana sem í flestum tilfellum þorðu ekki að taka neitt á málum. Sammála mönnum að leikjaplan og úrslit komu alltof seint á þessa síðu og það þarf að bæta það fyrir næsta mót.
Held að enginn sé að væla eins og krakki. Sagði ekki að öll dómgæsla hafi verið slök lentum á mjög góðum dómurum inn á milli en síðan stundum á krökkum sem nentu ekki einu sinni að lyfta hendinni til þess að benda í hvaða átt innkast var því þeir voru fastir með hendurnar í vösunum á gallabuxunum
Þessi umræða er á frekar lágu plani. Dómgæslan hjá mínu liði var með afbrigðum góð eins og nánast allt sem sneri að framkvæmd þessa móts. Vissulega saknaði maður þess að fá ekki uppfærslu á úrslitum og stöðu inn á vefinn eins og undanfarin ár en maður fer samt ekki að væla yfir því eins og lítill krakki. Bestu þakkir fyrir gott mót!
Það er einmitt út af slakri dómgæslu hjá krökkunum með flauturnar sem menn æsa sig. Þetta bláa spjald er líka rugl. sá gefið blátt spjald fyrir að gríta boltanum í andlit andstæðings og fleiri furðuleg atvik. Er sammála því að Þór sé með allt niður um sig varðandi dómgæslu og fleira. Menn eru að borga fyrir að taka þátt þá er lágmark að þetta sé í lagi.
Auðvitað má örugglega gera betur í fullt af hlutum,hinsvegar finnst mér og fleirum að ansi margir sem koma hingað og taka þátt vera búnir að gleyma því um hvað þetta pollamót snýst um,að hafa gaman að því að hittast,spila bolta,hlægja,fá sér öl og njóta lífsins.Það er ótrúlega kjánalegt að sjá hluta af leikmönnunum hér drulla yfir dómarana og hálfpartinn slást við andstæðinginn,auðvitað vilja menn vinna og ganga vel en högum okkur nú eins fullorðið fólk,ef menn koma hingað einungis til að vinna fótboltamót og hafa svo allt á hornum sér ef illa gengur þá eru menn komnir á villugötur
Mér og fleirum finnst Þór vera farinn að gera upp á bak í skipulagningu þessa móts. Þetta virðist aðeins ganga út á að ná sem mestum peningum út úr þessu með sem minnstum tilkostnaði. T.d. er alveg með eindæmum hversu seint úrslit og staða riðla kemur hér inn og hvenær leikjaniðurröðunin er tilbúin. Eins er óþolandi að vera með krakka í dómarahlutverkum sem þau valda engan vegin.
Ja hvernig er eitthvað klikk í kerfinu?Þetta virkar allavega ekki
Góðan og blessaðan, hvernig er með uppfærslu á úrslitum og stöðu. Það væri gaman að sjá þetta detta inn eins og s.l. ár. Hvað er að frétta Þórsarar? Ussssss! Kveðja, H. Gunn
Það væri nú fínt að fara að sjá leikjaniðurröðun. Hvaða hangs er þetta???
Hæ, er möguleiki að fá að sjá niðurröðunina á leikjunum fyrir morgundaginn ?
Heilir og sælir! Ég er að furða mig á reglu 8.3 hjá ykkur sem bannar skriðtæklingar. Er þetta virkilega rétt, fáum við s.s. ekki að tækla í rigningunni á Akureyri þetta árið? Þessi regla var ekki smíðuð fyrir fullorðna menn. Ég er svo alveg til í að æsa mig yfir þessu "bláa spjaldi" sem á að innleiða í ár. Kv. Bangsi
Hvenær er von á leikjaniðurröðun? Væri nú gott að fá þetta á hreint fyrir fyrsta leik
Svona þar sem það er ekki komið svar, þá var ég einmitt að velta þessu fyrir mér með grasskóna. Skv. reglum KSÍ eru grasskór allir takkaskór sem hafa skrúfaða takka. Þannig að ég reikna með að venjulegir takkaskór séu í lagi!
Hvað meiniðið með því að grasskór séu ekki heimilaðir?
Samferða? Er einhver á leið norður úr Reykjavík á fimmtudag sem vill deila fari? Get hvort sem verið á bíl eða til í deila fari með einhverjum. Síminn er 863 3856. Ágúst
sæl vala þú getur sent mér nafnalistann á e-mailið pollamot@thorsport.is, eða komið með hann fullmótaðann á mótsstað áður en leikar hefjast, það þarf ekki kennitölur
Leikjaplanið gæti orðið klárt seinnipartinn á morgun, í síðasta lagi á fimmtudagsmorgun
Saelir Hvenaer kemur dagskra fyrir fostudaginn, thad er leikjaplanid? kv Rut
Hvenær verðum við að vera búnar að senda inn nafnalista, á kennitala að fylgja?
Sæll Magnús Þeir sem eru í 45+ mega spila niður fyrir sig. Menn mega ekki spila með tveimur liðum, en ef þetta er akut redding þá er þetta samstarfsverkefni mótstjórnar og þeirra liða sem eigast við og málið leyst á farsælar hátt :)
Sæll! Er þeim sem spila í 45+ heimilt að spila með bæði 40 og 45+ til þess að ná í lið ?
Sæl Eyrún, þú getur sent nafnalistann á e-mailið pollamot@thorsport.is
Hvar skráir maður inn leikmenn?
Sælir strákar! Eg ætla að mæta í ÁR!
Ég tek undir þetta með hoppikastalanna. Krakkarnir voru orðnir mjög pyrraðir yfir því hvað þetta kom seinnt upp í fyrra. Ég verð samt að hrósa ykkur fyrir að setja upp 20+ kvk mót, mun klárlega breyta stemmingunni á tjaldstæðinu. Kveðja. Geiri Riddari.
Hæ Hæ... Hvenær byrjar mótið strákar? kv. Steini #10
Sælir strákar og takk fyrir frábær mót síðustu ár :) Hvenær birjar mótið í ár? Kv. Steini #10
Hann er kvenkyns, en ég get breytt því ef þið kjósið frekar karlkyns nuddara.
Sæll, við strákarnir erum að spá hvort þessi nuddari sem verður í Hamri báða keppnisdagana sé karlkyns eða kvenkyns.
Ég passa upp á það að leiktækin verða klár á föstudagsmorguninn
Undanfarin ár hafa þessir hoppukastalar og leiktæki komist í gagnið alveg ótrúlega seint, krakkarni að bíða eftir þessu allan föstudaginn. Á að herða sig eitthvað í þeim málum ?
Sæll Heiðar Leikmenn í 3.deild mega spila á pollamótinu.
Eru reglur í mótinu varðandi leikmenn sem spila t.d. í 3 deild KSÍ ?? Mega þeir vera með í Pollamótinu ?
Allir í sama liðinu mega vera með sama númer.
Mega allir í sama liði vera með sama númer á bakinu?
Sæl Gerður. Þú skilur þetta alveg rétt, þú mátt senda eitt lið sem er í 20+ og síðan annað lið sem er í 30+, það er í lagi að eldri stelpur séu í yngra liðinu. Hvað varðar mótsgjaldið þá er gjöf frá Icelandair í gjaldinu sem og vegleg dagskrá báða dagana og bæði kvöldin. Sú dagskrá ætti ég að geta kynnt hér á síðunni á næstkomandi mánudag.
Mig langaði að vita hvað er innifalið í mótsgjaldinu? Er það bara mótsgjald eða eitthvað fleira? Er ég að skilja rétt að við stelpurnar megum senda eitt lið sem er 20 - 30 ára og eitt 30 plús? Og er í lagi að í 20 ára liðinu séu einhverjar yfir 30 ára?
Sæl Þóra Ef þið náið ekki í lið í þessum aldursflokkum sem eru í boði, þá sé ég ekkert til fyrirstöðu að þið fáið að spila sem gestalið, þið yrðuð sett í aldursflokkinn sem væri næst ykkur og spiluðu ekki uppá stig, heldur ánægjunnar :)
Hæ, getum við mætt og fengið að vera gestalið? eða hvernig virkar það. Kveðja
Sæll Lárus, þær skráningar sem mér hafa borist eru Árborg, Hvíti Riddarinn og KS. Ef ekkert af þessum liðum eru frá þér þá sendu mér skráninguna þína á hlynur@akureyri.is
Sælir. Langar að vita hvar maður getur séð hvort skráning mín hafi tekist. Hef ekki fengið póst um það.
Takk fyrir það, vona að þetta verði til að fjölga liðunum í kvennaflokkunum, en ég hef ekki fengið þína skráningu. Það gæti stafað af því að síðan er í lokapússningu, bíddu í 2-3 daga með skráningu eða sendu mér skráninguna beint á e-mailið hlynur@akureyri.is. Bestu kveðjur Hlynur
Ætlaði bara að tjekka hvort skráning KF kvk Mjaðmar hefði tekist þar sem ég fékk einhvern póst um error. Auk þess sem ég ætlaði að lýsa yfir ánægju minni með breytingunni á aldursflokkunum! :)
Hvenar byrjar mótið?
pollamót
![]()
